í dag var einn af þessum dögum þar sem ALLT er í gangi á sama tíma – Ása og Olli kepptu á sundmóti bæði fyrir og eftir hádegi í dag. Bekkjarafmæli Sigurborgar Ástu var líka og í kvöld var svo jólahlaðborðið í vinnunni hans Leifs.
Það er óhætt að segja að allt hafi gengið upp, amk á endanum, ég kom ca klst á eftir öllum í jólaboðið því Sundmótið dróst svolítið og auðvitað þurfti Oliver að vera í síðustu greinunum á mótinu *dæs*
En þetta fór allt vel 🙂
Krakkarnir stóðu sig með prýði á sundmótinu.
Sigurborg átti yndislegan bekkjarafmælisdag ásamt nokkrum öðrum skvísum í Smárabíó þar sem við buðum stelpunum í bekknum á Frozen 2 – þvílík gleði!
og við hjúin áttum góða kvöldstund með vinnufélögum Leifs og nutum þess að fá góðan mat <3