Mér finnst svo dásamlegt að sjá hversu ljúfur, góður og þolinmóður Oliver er við yngstu frændsystkinin. Það kemur svosem ekki á óvart því hann er afskaplega þolinmóður einstaklingur og ljúfur er hann – engin furða að hann hafi verið kallaður “stúfur ljúfur” frá því að hann var bara pons 🙂
Hér er hann með Jón frænda sinn sem er yngstur í frændsystkinahópnum. Þeir voru nefnilega búnir að koma sér vel fyrir fyrir framan tölvuna í Oliversherbergi og Oliver að sýna frænda sínum video af Andrési Önd 🙂
Jóni til mikillar gleði.