Ég var einusinni að vinna með konu sem sá hjörtu út úr ótrúlegustu hlutum. Hún benti mér ítrekað á sniðug þannig móment og síðan þá hef ég tileinkað mér þetta líka. Mér verður reyndar oft hugsað til hennar þegar ég rekst á eitthvað hjartalaga og á það jafnvel til að senda henni mynd af því ef þannig liggur á mér 🙂
En ég er farin að taka myndir úti í náttúrunni þegar hún hefur skapað hjartalaga munstur í steina, berg eða bara hvað sem er og á orðið ágætis safn af allskonar hjörtum.
Í dag þegar við opnuðum ísbox fyrir afmælisbarnið okkar birtist þetta fína hjarta í lokinu <3 Mér finnst það vel við hæfi.