Systurnar eru stundum svolítið fyndnar… Ása var alveg iðandi í skinninu í gjafavöruversluninni í Harry Pottersafninu að kaupa sér eitthvað sniðugt.
Úr varð að hún keypti sér svona hálsmen. Henni fannst það æði og hefur oft verið með það um hálsinn síðan við komum heim.
Sigurborg Ásta mátti eiginlega ekki vera minni manneskja og keypti sér alveg eins… þetta er hennar. það er enn á spjaldinu og aldrei verið notað 😉