Stundum er bara smá dekur málið 🙂
Ég var mun duglegri að lakka á mér neglurnar hérna fyrir þónokkuð mörgum árum síðan. Átti líka annsi myndarlegt safn af naglalökkum enda mörg þeirra keypt þegar ég var hjá Ástu frænku 1999 á mun lægra verði heldur en býðst hér á klakanum.
Ég er mjög hrifin af GEL lökkunum frá Sally Hansen, finnst þau haldast lengur á nöglunum en margar aðrar tegundir. Finnst stundum eins og þau byrji að flagna 5 mínútum eftir að ég set þau á mig óháð forvinnunni, þ.e. hvernig ég meðhöndla neglurnar áður en ég lakka þær.