Ég sver að ég vissi ekki að mig vantaði þessa poka fyrr en ég prufaði að kaupa 1 sett og nota í ferðalag fjölskyldunnar.
Þetta heldur algjörlega utanum allt þetta “smáa” nærföt, sokka og þessháttar.
Það er að sjálfsögðu hægt að nota stærri týpurnar fyrir öll föt en ég prufaði að gera það með föt krakkanna þegar við fórum til Spánar í fyrra sem var þvílíkur lúxus. Olli átti allt sem var í dökkbláum svona pokum, Ása allt í rauðu og Sigurborg í gráum. ísípísí og enginn að gramsa eftir sínu í töskunum!
Algjör lúxus – notaði svo sama system fyrir Tenerife ferðina í vor. Er svo með minni “pul” poka eins og eru mest seldir fyrir taubleyjur undir óhreina sokka og nærbuxur! mæli hiklaust með þessu tvennu!