Stundum er fátt sem ratar hingað inn annað en myndir af því sem ég hef átt þátt í að skapa.
Þessa stelpu til dæmis á ég – yndislega hjartahlýja Skottuborgin mín.
“mamma viltu kítla mig?” heyrist oft upp úr þurru þegar við erum að kúrast í sófanum eða upp í rúmmi.
Ég prjónaði þessa húfu á hana nýlega, uppskriftin heitir VERA og keypti ég hana á vefnum “stroff.is” – mjög einföld og fljót prjónuð 🙂
Það má finna frekari upplýsingar um mína útgáfu hér á Ravelry 🙂