Ása Júlía kom til mín um daginn og bað um að fá að fara í prufu fyrir Kardemommubæinn – það voru nefnilega “allar” vinkonurnar að fara í áheyrnarprufur 🙂
Þetta var auðleyst, bara skrá dömuna og senda mynd. Hún var svo boðuð í prufu sem var í morgun. Svo skemmtilega vildi til að 3 af vinkonunum áttu að mæta á sama tíma 🙂
Ása Júlía fór í gegnum dansprufurnar en 2 af vinkonunum komust svo áfram í söngprufurnar líka.
Þetta var skemmtileg tilraun og Ása í skýjunum með að hafa þorað 🙂