Fyrsta skólaballið framundan hjá Ásu minni.
Það er þema í gangi sem vísar í foreldra og eiga krakkarnir að mæta í fötum af foreldrum sínum. Verð að viðurkenna að það er ekkert til hérna heima sem gengur auðveldlega á hana Ásu mína en við redduðum okkur 😉
Mér finnst enn svo fyndið hvað hún og Oliver eru miklar andstæður. Ballið er fyrir 5-7 bekk og Oliver vill frekar mæta á fótboltaæfingu heldur en ballið… fer kaaaaannski eftir æfingu, sennilegast ekki samt.