Við Sigurborg Ásta nældum okkur í þessa viðbjóðs pest sem er að ganga.
Reyndar þá tók hún gærkvöldið og fram á nótt og var svo alveg eins og hún á að sér að vera í morgun.
Ég hinsvegar byrjaði undir morgun og var handónýt í allan dag. Sé ekki einusinni fram á að mæta til vinnu á morgun, það er bókstaflega engin orka til staðar.
Nú er bara að krossa fingur og vonast til þess að hin 3 sleppi líka.
Annars þá toppar þessi athugasemd frá Sigurborgu Ástu allt!
mamma, hvenær ætlaru eiginlega að koma á fætur..
þetta sagði daman undir hádegið þegar ég var búin að vera ælandi í nokkrar klst og gjörsamlega orkulaus.