þessi kappi er pínu þreyttur eftir keyrslu síðustu daga .. hann má það líka…
Samræmd próf í skólanum á fimmtudag og föstudag og svo sundmót í gær og í dag.
Árangur sundæfinga siðustu vikna lætur ekki á sér standa á þessu móti og í þeim 6 greinum sem hann keppti í var heildar bæting rúmlega 40 sek í greinum sem hann á nýjustu tímana í frá í vor eða ca 4 mánaða gamlir.
Við erum ekkert lítið stolt af kappanum okkar sem stendur sig svo vel.