seinni sokkurinn í sokkasamprjóninu er alveg að verða tilbúinnnnnn, jájá eintóm sokkamál í gangi hér í K48.
Þetta er alveg ótrúlega einföld og falleg uppskrift. Ég hef yfirleitt miklað sokka prjón fyrir mer, veit ekki afhverju. prjónaði ullarsokkapar á sínum tíma í 9 eða 10 bekk og hef að ég held gert 1 par síðan… fyrir utan snúningsokka sem ég prjónaði á meðan ég gekk með Sigurborgu Ástu.
Allavegna þetta er allt að gerast og ég er bara sátt við útkomuna enn sem komið er.