Öðru hvoru gerir stelpuhópurinn í vinnunni sér glaðan dag og skellir sér á happy hour á Slippbarnum … stelpurnar segi ég því strákarnir eru alltof sjaldséðir gestir (og ég reyndar líka).
En í þetta sinn var smá tilefni sem var samt ekki beint skemmtilegt fyrir okkur hin en við vorum að kveðja hana Siggu Sála okkar sem ætlar að hjálpa börnum á öðrum vettvangi.