Hópur sem ég er í á facebook ákvað að hafa samprjón í september þar sem allir eru að prjóna sömu sokkauppskriftina sem heitir Hermione’s Everyday Socks og er frí á Ravelry.
Ég ákvað að skella mér með og fann þetta gula garn sem ég átti frá “Frá héraði” sem heitir hinu ó svo réttmætanafni “Sólblóm” – fannst þeir samt verða eitthvað svo “of gulir” að ég keypti mér dokku af fabel til þess að nota í hælinn og tærnar.
Takmarkið er að klára þá fyrir 30.september en ég er rétt komin að hælnum núna á fyrri sokknum ég verð engastund með þennan fyrri sokk en svo er það alltaf sá seinni!