Við skelltum okkur í berjamó í dag. Bara rétt svo til þess að tína nokkur ber út á skyr 😉
Höfum farið nokkrum sinnum upp að gamla skíðaskálanum i Skálafelli sem reyndar er ekki til staðar lengur nema rétt grunnurinn/kjallarinn sem var eini steypti hlutinn 😉
Það var reyndar augljóst að við vorum ekki þau fyrstu sem kíktum þarna eftir berjum en krakkarnir týndu vel bæði í dós og munn 😉