það er óhætt að segja Loksins í þessu samhengi þar sem þetta var ákveðið sem Ásu Júlíu herbergi fyrir rúmlega 6 árum síðan…
það tafðist að hafa það formlegt þar sem jú fyrst deildu Ása og Olli herberginu í kojunni sinni þar sem Olla herbergi var undirlagt sem framkvæmdasvæði fyrir stigamál upp í ris og tja risið í sjálfu sér líka. Þau fengu reyndar að hafa það sem leikherbergi í nokkra mánuði áður en þessar framkvæmdir yfirtóku herbergið.
Þegar Oliver flutti upp í sitt herbergi var Sigurborg Ásta fljót að eigna sér kojuna hans! en nú er komið að því að Ása Júlía fer úr kojunni og kojan reyndar flutt yfir í Sigurborgar herbergi en Ása fær nýtt rúm.
Við vorum fyrst að spá hvort við ættum að setja einhvern lit á þennan vegg en á endanum ákváðum við bara að skella hvítum lit á hann og svo er bara að finna eitthvað fínt til þess að hengja yfir skrifborðið sem mun standa við þennan vegg þegar þessi framkvæmdavinna er yfirstaðin.