Klassískt kökumont verður að fylgja með eftir afmælisboð …
Hér er ein sem mér þykjir alltaf góð – gengur oft undir nafninu “bounty kakan” enda er hún í raun marengs og kókos með súkkulaðikremshjúp 🙂
Klassískar rice crispies kökur ganga alltaf út…
Svo má ekki gleyma aðal kökunni þennan daginn – sjálfri afmæliskökunni 😉
Hér er um að ræða 4 botna af “latabæjarkökunni” dísæt súkkulaðikaka með smjörkremshjúpi og skrauti úr fondant sem við dúlluðum okkur við að gera í gærkvöldi þannig að útkoman varð “Harry Potter” þemakaka – sem afmælisbarnið EEEEELSKAÐI enda elskar hún allt sem tengist þessum bókum.