Það er ekkert smá skrítið og jafnframt óþægilegt hvernig öll lykt berst auðveldlega um húsið hérna…
t.d. um daginn þá var alveg svakaleg hangikjötslykt hérna í húsinu… hef Nönnu og félaga sterklega grunaða um þann ilm. Sat bara hérna í minni móttöku og hlustaði á garnirnar gaula svona plat gauli því að þessi ilmur gerði mann BARA svangan!
Núna er einhver að lakka eitthvað í húsinu… ég fæ bara massívan hausverk af svoleiðis fýlu… hlakka bara til að komast út í banka, sem ætti að gerast innan næstu 20 mín & fá að komast heim … sem verður eftir ca 30 mín 🙂