ó svo djúsí – ó svo girnilegt!
Ég elska elska elska kjúklingastandinn okkar á grillið en nota hann hinsvegar ekki nærri því nógu mikið!
það er svo lítið mál að mixa góða kryddblöndu í “glasið” og gera hann djúsí á þann hátt.
Í þetta sinn stal ég reyndar bara hluta af bjórnum hans Leifs – hann var hvorteð er að sötra einn slíkann 😉 Kryddaði bara með venjulega kjúklingakryddinu og þegar hann var hérumbil tilbúinn penslaði ég BBQ sósu á kjúklinginn og kláraði grillunina þannig – ó hvað hann var góður!