Ása Júlía bað mig snemma í sumar að komast að því hvenær Brúðubíllinn yrði í Seljahverfinu í sumar og í dag var stóri dagurinn!
Systurnar voru harðákveðnar í að fara og ég ætti að koma með þeim. Úr varð reyndar að Ásta Margrét kom líka.
Stelpurnar skemmtu sér vel og voru reyndar hissa á því að sýningin hefði bara verið í 30 mín! Voru allar vissar um að þetta hefði verið amk 60mín sýning.