Mig hefur lengi langað að kíkja í sundlaugina á Hofsósi og úr varð að við tókum smá útúrdúr á leiðinni heim frá Akureyri í dag og skelltum okkur í sund þar.
Pínulítil laug og enn minni pottur með míní útgáfu af rennibraut – og endalaust af útlendingum eða íslendingum með erlenda vini með í för og svo við!
En útsýnið það litla sem við fengum til að byrja með var dásamlegt og ég gæti alveg trúað því að þetta sé draumur í dós þegar þokan er ekki á svæðinu þótt hún hafi sinn sjarma.