180
Ég á pínulítið erfitt með að samþykkja það að á morgun sé síðasti leikskóladagurinn hennar Sigurborgar Ástu og þar með lýkur rúmlega 10 1/2 árs leikskóladvöl okkar Leifs en krakkarnir hafa náð að vera samfellt á Austurborg frá því að við Leifur urðum leikskólaforeldrar.
Að hennar ósk mætti daman með popp og nóg af því til þess að kveðja hópinn en leikskólinn fer ekki í frí fyrr en í næstu viku en þar sem Oliver er að fara að keppa á N1mótinu á Akureyri var ákveðið að hún hætti ca viku fyrr og við brunum Norður eftir vinnu/leikskóla á morgun.
181
Þar sem þessar 2 færslur tengjast eiginlega of mikið þá ákvað ég að demba þeim bara í eina en hér eru myndir frá kveðjum Sigurborgar Ástu í dag.
Við rétt náðum í skottin á Konný (leikskólastjóri) og Agnesi (Aðst. leikskólastj.) áður en þær yfirgáfu húsið og náðum að knúsa þær bless líka þó það hafi ekki náðst á mynd 😉