og hann á það til að bíta FAST.
Ég er búin að vera með kuldahroll í mér í marga daga… er stundum alveg á því að ég sé með ísklumpa í stað tásla og að ég geymi puttana í klakavatni svona bara afþvíbara…
Í gærkveldi var mér reyndar svo fáránlega kalt að ég endaði með því að sofa með 2 sængur (svona fyrst að ég hafði rúmið alveg fyrir mig) og svaf þannig í alla nótt!! og ég sem er sögð vera heitfeng! Það skrítna reyndar við gærkveldið er það að það var alls ekki kalt úti… og í morgun var hvað 6°c hiti, allt annað en kalt.