202/365 hvaða dúskur… Posted on 24/07/201931/07/2019 by Dagný Ásta nú vandast valið… Ég er að prjóna ungbarnahúfu og langar að setja svona loðdúsk á kollinn en ég bara veit ekki alveg hvaða lit ég á að velja… Þyrfti líka að panta fleiri sýnist mér 😉 upplýsingar um húfuna finnast hér húfan Glóð prjónuð úr Quince & Co. Lark – bara eftir að prjóna böndin og velja dúsk.