Ása Júlía keppti á sínum fyrstu Akranesleikum í ár. Stóð sig með prýði og skemmti sér stórvel.
Við mæðgurnar mættum um hádegi í dag þar sem hennar greinar voru bara eftir hádegi og svo eru 3 greinar fyrirhádegi á morgun.
Til þess að heildarpakkinn gengi upp ákvað ég að bjóða mig fram sem næturstjóra í nótt ásamt einni annarri mömmu. Hópurinn er ekki stór en alveg nógu stór sem maður þekkir ekki.