Ég er algjör sökker fyrir því þegar íslensku sælgætisframleiðendurnir setja nýjungar á markaðinn og kaupi í 96% tilfella 1-2 stk um leið og ég sé eitthvað nýtt í verslunum. Tala ekki um þegar eins og t.d. Nói skellir inn á Facebook ca mánuði áður en þeir setja hlutina á markaðinn.
Minn dómur – þetta er alveg ágætt, kemur alveg til greina í vali á súkkulaði á nammidegi 😊