Dúlluteppið hennar Ásu Júlíu er enn í vinnslu – og verður það eflaust í svolítinn tíma til viðbótar… finnst fínt að grípa í að hekla nokkar litlar dúllur þegar ég er með stór verkefni í gangi.
Ég er samt bara núna fyrst að byrja að ganga úr skugga um að allir endar séu vel faldir í dúllunum sjálfum og leggja þær aðeins til í strekkingu.
Er ekki enn búin að velja lit til þess að binda herlegheitin öll saman… hallast mest að hvítum eða gráum, sumar dúllurnar eru samt frekar dökkar og svo alveg í mjög ljósar… þetta verður smá hausverkur 😛