jæja, ég er búin að fara í gegnum myndir síðustu ára… eða síðan við eignuðumst digital myndavélina. Ég er með rúmlega 150 myndir, Leifur 70 og ma&pa með rest af 251 mynd… ef ma&pa hefðu haft meiri tíma til þess að fara í gegnum allar sínar myndir þá held ég að þeirra hlutur hefði orðið dáldið mikið stærri
Jæja best að drífa sig inn í Krenglu og setja pakkann í prentun!!! *jeij*
læt eina fylgja með sem Leifur var að dunda sér við að búa til í gærkveldi *smæl*