Elskuleg mútta mín gerði heiðarlega tilraun til þess að fara með bílinn fyrir mig í gær í dekkjaskipti. Biðraðir út um allt allstaðar… þeir í Nesdekk sögðu reyndar við hana að hún ætti að prufa að koma um 6 leitið og sjá þá hvernig staðan væri…
Auðvitað fór ég eftir því sem þeir sögðu og viti menn þeir redduðu mér á vetrardekk!! *jeij* reyndar þurfti ég að skilja elskulegan bílinn minn eftir hjá þeim í rúma 4 klukkutíma en ég fékk þó vetrardekkin á bílinn og gat horft á Dead like me, Survæfor og CSI áður en hringingin kom frá þeim *jeij*
Reyndar frekar fyndið þegar ég kom út á dekkjarverkstæði þá er fyrsti maður sem ég rekst á hann Maggi töffari (eða Maddlú eins og Ósk kýs að kalla hann) hann var einmitt líka í dekkjarveseni líkt og moi… svo hitti ég hann Sigga vin hennar Fanneyjar líka, reyndar var hann svo heppinn að hann var búinn að fá sinn bíl í gegn og var bara að bíða eftir því að þeir kláruðu hann.