Ég rakst um daginn á færslu frá fireflynotes á Instagram þar sem hún var að sýna ný prjónamerki sem hún var að selja. Bara gat ekki staðist það að kaupa þau og bárust þau í póstinum til mín í dag.
Hugurinn fylltist af minningum tengdum Ástu frænku en hún eeeeeeelskaði allt uglutengt.
Firefly notes er með vefverslun þar sem hægt er að kaupa fullt af fallegum prjónamerkjum, pinnum og allskonar aukahlutum tengdum hannyrðum (og reyndar öðru líka)