Stelpukvöld!
ó svo kominn tími á það! Hitti Sirrý & Lilju í kvöld og fórum við á “konukvöld í Hafnarfirði” – kíktum í fjörðinn og nokkrar verslarnir þar í nágrenninu – m.a. Gatsby sem er alveg hrikalega sæt búð.
Við höfðum vit á því að tékka á borði á veitingastaðnum Krydd sem er í næsta húsi við Fjörðinn. Fengum borð rúmlega 8 og sátum þar í góðan tíma. Engin okkar pantaði það sama, ég fékk mér hreindýraborgara sem var mjög góður, splæstum á okkur desert og kokteilum !
Virkilega notaleg kvöldstund og hálf asnalegt hversu lélegur maður er í því að gera sér dagamun með vinkonunum.
P