Að eiga börn með sítt hár þýðir í raun bara eitt… þ.e. þegar börnin gefa grænt ljós… Hárgreiðsluleikir 😛
Verð samt að viðurkenna að dæturnar eru ekkert alltof viljugar að láta greiða sér… halda því fram að þær séu hársárar og svo frv en stundum, sérstaklega þegar það er eitthvað spennandi á skjánum fyrir framan þær fæ ég að gera eitthvað skemmtilegt.
Ása Júlía er reyndar búin að fatta það að fastar fléttur eru málið fyrir sund – sérstaklega sundæfingar 😛 Sigurborg Ásta hinsvegar samþykkir bara hárgreiðsluleiki þegar hún er búin að ákveða að vera fín, þá á líka hellst af öllu allt að vera fínt – hárið, fötin og ef hún fengi að ráða fengi hún gloss og glimmer alla daga og naglalakk að auki!