Eftir svona dag eins og var í dag þá má ég með sanni segja að þetta eigi ég skilið ..
Fólk er að fara á límingunum yfir fréttum af mislingasmitum og ég tala nú ekki um eftir fréttirnar í hádeginu um að fólk eigi að mæta um helgina á sínar heilsugæslustöðvar *úff* verð að viðurkenna að ég öfunda ekki hjúkrunarfræðingana því það eru þær sem eru að taka hitann og þungann af þessu máli öllu saman.