Það er búið að vera rugl að gera hérna í vinnunni hjá mér í dag… hef náð að henda inn nokkrum línum á MSN við þá sem eru aktívir þar… margt í gangi í kollinum á mér líka.. efasemdir og fleira “skemmtilegt”
Ég fékk ekki að taka mér matarhlé og hef í raun ekki haft mikinn tíma til þess að vera að leita að einu né neinu í dag… það er ástæðan fyrir síðustu færslu… beiðni um hjálp út af þessum rétti sem ég þarf að koma með á morgun…
Ég náði að stela mér nokkrum mín áðan í leitarstúss… fann hjá Pjúsurunum uppskrift af einhverju CusCussalati sem ég held að þau verði bara að sætta sig við…
“Sölulínan” er allavegana áhugaverð:
“Frábært couscoussalat með avokado, sólþurrkuðum tómötum, fetaosti og fullt af grænmeti “
læt vita á morgun hvernig það smakkaðist