Fimmtudagar = Bronsæfing, Laxaæfing og Gullfiskaæfing – hvenær vex á þau tálkn og sundfit?
Eini dagurinn þar sem þau mæta öll á sundæfingar 🙂 Stelpurnar eru báðar í sundi á þriðjudögum reyndar líka og Olli ætti að vera þar en mætir í staðinn á fótboltaæfingu á sama tíma og þær eru að synda – allt að gerast!
Þau eru öll svo ánægð að busla svona í vatninu og Ása Júlía er í skýjunum með að vera komin upp í Laxana (úr Bleikjum) því að þá fær hún að mæta 3x í viku – dásamleg er hún.