Ég held ég sé hætt í fikteríinu í bili, er komin með pínu jólalegt á síðuna mína og held að ég láti það bara duga í bili Bara rétt svona að tengjast jólunum.
Ég vona að þetta look eigi eftir að haldast amk eitthvað hjá mér… ég hreinlega nenni ekki að fara út í eitthvað flókið… voða þægilegt að hafa hlutina svona einfalda.
Annars þá er ég búin að vera að hjálpa Evu að læra á bæði Dream Weaver & SmartFTP… mér finnst stundum sem ég sé einhver knowitall í sambandi við svona forrit en þegar ég átta mig svo á raunveruleikanum þá er ég bara pínu ofar en þeir sem ég hef verið að hjálpa…
sbr Kolla, Hanna & Urður með linka ofl á síðurnar þeirra, Sirrý með að búa til gestabók hjá sér og svo framvegis… er víst alltaf að þessu.. Hugmynd! kannski ég ætti bara að fara að rukka fyrir þetta.. gæti náð mér í ágætis aukapening.. verst að ég er ekkert klár í þessu *hehe* bara aðeins duglegri í að fikta og svo frv heldur en sumir…
jæja best að hætta þessari vitleysu og klára að vinna…