Hrafn Ingi bróðursonur Leifs á afmæli núna 19.feb og fagnar fyrsta “tán” afmælinu sínu eða þrettán! Í tilefni dagsins kom góður hópur af hans nánasta fólki saman á veitingastaðnum Aski.
Við létum okkur ekki vanta og nutum góðs matar – sumir á Steikarhlaðborði aðrir af matseðli .
Alveg óhætt að segja að Oliver hafi borðað fyrir allan peninginn og reyndar Hrafn Ingi líka enda varð afmælisbarnið smá pínu ofviða þegar þjónarnir mættu með afmælisís fyrir hann af stæðstu gerð!