Leifur er búinn að vera að mála skriðdreka síðan e-n tíma í haust.. Nýlega datt hann inn í hóp sem spilar “Flames of War” vikulega og halda líka mót reglulega.
Nýjasta æðið í þessu hjá honum er að útbúa “umhverfi” og þetta eiga því að vera akrar og girðingar 🙂
Viss kostur að hann er voðalega öflugur að nýta það sem tilfellur í þessu t.d. voru allir Mandarínukassarnir fyrir jól tættir niður og notaðir sem undirlag í hluta af dótinu sem hann er að spila.