Starfsdagur í leikskólanum og ég tók mér frí í vinnunni til þess að stússast með Skottuborginni minni…
Aldrei þessu vant þá var hún til í að leggja sig aftur og kúra eftir að krakkarnir voru farnir í skólann og steinsofnaði.
Þegar ég ýtti við henni rúmlega klst síðar fann ég að hún var sjóðandi heit og viti menn daman komin með tæplega 40°C hita og var þannig í allan dag 🙁 lítið varð því úr stússi okkar mæðgna þar sem elsku litla skottan var bara í móki í fanginu á mér því þar vildi hún helst af öllu vera <3