jæja… þá er stórafmælishrynan byrjuð 😉 Megnið af vinunum fagnar 40 árum í ár og við það bætist svo að tengdó verða bæði 70 ára í ár og eldri dóttirin fagnar fyrsta tugnum!
Kolla æskuvinkona reið á vaðið að vanda og bauð til veislu í sal Systra og Maka í Síðumúlanum í kvöld (fædd 17.janúar) og var það ekkert slor! Þvílíkt girnilegir smáréttabakkar sem erfitt var að hætta að kíkja á og skemmtiatriði bæði undirbúin og óundirbúin …
Þar sem Kolla er rosalegur aðdáandi Siggu B ákvað Áslaug hennar að fá “leynigest” sem var engin önnur en Sigga B! og Kolla starstruck upp á sviði með Siggu sinni. Þvílíkt stuð! Páll Óskar mætti líka og tók nokkur velvalin lög 😉 að ógleymdum ræðum frá Skafta og vinkonum Kollu.
Yndislegt kvöld að baki!
Takk fyrir mig elsku Kolla <3