Ég held án gríns að þetta sé neðst á listanum yfir heimilisverkin hér á bæ.. ok ætli sokkarnir séu ekki neðar.
Þetta eilífa fjall sem aldrei minnkar enda svosem ekkert skrítið fyrir 5 manna fjölskyldu þar af 1 sem er á æfingum 6x í viku… og það vantar öll handklæðin þarna inná!
Ég geri mitt besta samt að virkja amk eldri börnin í að taka sitt og brjóta saman og ganga frá en þar sem þessi vika er frekar strembin hjá allri fjölskyldunni tímalega þá læt ég duga í þetta sinn að “neyða” þau til þess að ganga frá 😉