2 hlutar annar byrjaði kl 8 og var búinn um 13 og sá síðari byrjaði kl 15 og var búinn um kl 19 – annsi lýjandi dagur… ótrúlegt hvað það að vera í áhorfendastúkunni í svona röku sundlaugarlofti gerir mann þreyttan.
Hvað um það! sonurinn í skýjunum eftir daginn og gekk rosalega vel – enda með titilinn Reykjavíkurmeistari sveina í 50m skriðsundi 🙂
Náði líka silfri í 100m fjórsundi og 100m skriðsundi og svo bronsi í 50m bringu.