Ég fékk Ulluna mína senda í gær og finnst þetta ferlega sniðugt fyrirbæri.
Ulla er ss lítið tæki sem maður festir á vatnsflösku/glas með silicon teygju og gefur hún þér merki eftir 40m ef maður hefur ekki fengið sér sopa síðustu 40mín 🙂
Ég er dugleg að vera með vatnsflöskur í vinnunni en á það til að gleyma að fá mér sopa þrátt fyrir að hún standi á borðinu hjá mér full af svalandi vökva í þessu þurra lofti sem vill oft verða þar sem mikið er verið að vinna með pappír (þetta hefur þó snarlagast eftir að við urðum “pappírslaus”).