Við kláruðum að taka niður jólin í kvöld eða þar að segja jólatréið. Ég er ekki frá því að þetta hafi verið eitt fallegasta tréið sem við höfum verið með. Kannski líka mestu skyndikaupin á tréi þar sem Leifur fékk nett svimakast um leið og við vorum komin inn í Blómaval með krakkaskarann með okkur… endaði með því að hann fór út í bíl með stuðningi frá Olla til þess að jafna sig á meðan við stelpurnar skoðuðum aðeins tréin og vorum reyndar ekki alveg sammála með hvaða tré til að byrja með.. alveg þar til við fórum í næsta verðflokk fyrir ofan 😛