Nýárshefðin okkar er matartengd og í miklu uppáhaldi hjá okkur öllum þar sem okkur þykir öllum purusteik ljúffengur réttur.
Leifur sér um steikina frá A til Ö eftir kúnstarinnarreglum frá pabba sínum með smá negulnagla&lárviðarlaufaísetningarhjálp frá undirritaðri 🙂
Óhætt að segja að purupoppunin hafi tekist einstaklega vel þetta árið. Sama rifrildið var í þetta sinn líkt og öll önnur en það er, hver fær puruskammtinn hennar mömmu 😉 já þó mér þyki steikin góð þá á ég erfitt með puruna og þá fitu sem henni fylgir hinum til ómældrar gleði þar sem þá er bara meira fyrir þau 🙂