það var fjölskyldurölt í familiunni hans Leifs í morgun… gott mál… við skötuhjúin áttum að sjá um það þennan sunnudaginn Ekkert mál fyrir “Jón Pál” drógum liðið niður í Elliðárdal og tókum hring þar. Gengum frá Félagsheimilinu sem er þarna við Rafstöðvarveginn upp að stíflunni og framhjá Fylkisvellinum og svo í hring niður að stíflunni aftur… ágætis göngutúr sem tók tæpan klukkutíma…
Fengum ágætisveður, ekkert sérstaklega kalt og enginn vindur en þess í stað slatta rigning, ekta útlandarigning því að það ringdi beint niður vorum líka dáldið vel blaut þegar við mættum aftur í bílana *hehe* ég er enn að ná í mig hita!!