Það er einhver snillingur búinn að leggja svaka fína jeppanum sínum utan í girðinguna hérna hjá okkur…
Ég er að tala um að ef bíllinn er ekki rispaður þá er viðkomandi einstaklega heppinn því að það kemst ekki blað á milli stuðaranns og girðingarinnar.
Ég veit það fyrir víst að ef ég myndi gera þetta þá myndi ég gráta lakkið all svakalega… hvað þá ef ég væri á ca ársgömlum jeppa… ég er að tala um að þessi bíll er svo fansí að hann er með leðursætum og innréttingum *úff*
~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~
::öppdeit::
Pabbi hitti á eigandann áðan…
þetta kennir manni sko alveg það að það Á að skilja bílana eftir í handbremsu… það var nefnilega málið hjá karlinum að bíllinn hefur runnið á girðinguna…
OG ég hafði rétt fyrir mér… sást víst ágætlega á lakkinu á bílum…