dísús… afhverju er svona erfitt að ná upp svefni…
Fór í gær í kaffiboð til Jökuls & Ingu í tilefni afmælis tvíburanna (Inga & Anna). Ekkert smá fínt hjá þeim.. stelpurnar búnar að skera niður glás af ávöxtum og baka köku.. *nammigott*
Sá líka litla tisann þeirra hann Heimi í fyrsta sinn… þvílíka krúttið!!! gat auðvitað ekki haldið mig frá honum og var líka orðin alveg stíbblud lengst upp í heila og já fólkið sagði að augun mín hefðu verið á floti. hmm ekki alveg nógu sniðugt… þarf að læra að halda mig frá þessum yndislegu litlu verum.