mér finnst svoooooooooooooooooooo leiðinlegt að kljást við stofnanir, það er svo algengt að fólkið sem er í því að svara í símana er svo dónalegt og leiðinlegt að það er ekki einusinni fyndið!!! eða þá að það bara virðist ekki hafa hugmynd um hvernig það á að framkvæma hlutina, en einn ljós punktur só far í dag… ég hringdi í TR og þurfti að tala við erlendu deildina og lenti þar á manni sem var alveg ekkert nema hjálplegur og með þvílíka þjónustu lund og bara dýrka hann!! allavegana eftir að hafa verið að tala við gellurnar hjá Landsímanum, ekkert nema vesen… hvað meinaru kemur ekki sónn en þú ert að hringja … döh!!! ekki út í þessi mál Dagný Ásta! annars þá á ég núna 2 uppáhalds starfsmenn hjá TR 🙂 Sigrúnu skvísu og þennann gæja sem ég man ekki hvað heitir.