Þegar Sálin auglýsti viðhafnar og kveðjutónleika í sumar ákváðum ég, Sara & Krúsa að gera okkur glaðan dag og skella okkur á tónleika saman.
Við misstum reyndar af miðasölunni þegar fyrstu tónleikarnir fóru í gang en vorum snöggar að grípa tækifærið þegar tónleikar nr 2 voru auglýstir og fengum miða á þá!
Byrjuðum á því að skella okkur út að borða á Bastard og fá okkur að borða og drykk fyrir tónleikana – frekar fyndinn staður!
Við sátum efst á miðsvölunum og ekki laust við að smá lofthræðsla gerði vart við sig! En nutum okkar engu að síður 🙂
Skemmtilegir tónleikar með flestum af uppáhalds lögunum sem Sálin hefur flutt í gegnum tíðina.